Tjippies · SÁÁ
FRAMKVÆMDASTJÓRI LÆKNINGA
Beskrivelse
Viltu leiða faglega þróun læknisþjónustu SÁÁ og hafa áhrif á framtíð meðferðar og þjónustu?
SÁÁ leitar að öflugum og framsýnum leiðtoga í starf framkvæmdastjóra lækninga.
Viðkomandi leiðir faglega þróun og samræmingu læknisþjónustu SÁÁ þvert á starfsemina. Starfið heyrir undir forstjóra og felur í sér ábyrgð á gæðum, þróun og samstarfi við stjórnendur og fagfólk innan samtakanna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veita læknisþjónustu SÁÁ faglega og stefnumótandi forystu
- Samræma læknisfræðilegt verklag, meðferðarlínur og fagleg viðmið þvert á starfsstöðvar
- Bera ábyrgð á gæðum læknisþjónustu, sjúklingaöryggi, sjúkraskrá, klínískum ferlum og umbótastarfi
- Leiða þróun þjónustu, innleiðingu nýrrar þekkingar og þróunarverkefni á sviði lækninga
- Stýra faglegri þróun læknateymis, fræðslu og mönnun í samstarfi við stjórnendur
- Taka þátt í stefnumótun, áætlanagerð, rekstri og forgangsröðun þjónustunnar
- Vinna að samstarfi við yfirvöld, heilbrigðisstofnanir og aðra samstarfsaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
- Lækningaleyfi á Íslandi og sérfræðimenntun sem nýtist í starfi
- Reynslu eða sérþekkingu á sviði fíkni- eða geðheilbrigðisþjónustu
- Víðtæka klíníska reynslu og sterka faglega sýn
- Reynslu af stjórnunar- eða leiðtogahlutverki
- Þekkingu á gæðamálum, umbótastarfi og þróun heilbrigðisþjónustu
- Reynslu af stefnumótun, áætlanagerð og rekstrarlegri ákvarðanatöku
- Hæfni til að leiða breytingar og þróunarverkefni
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
- Hæfni til að vinna með gögn og árangursmælikvarða
- Mjög góða færni í íslensku og ensku
Umsóknarfrestur er til og með 9. nóvember 2026.
Sótt er um á www.mognum.is
Með umsókn þarf að fylgja með ítarleg ferilsskrá auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.
Nánari upplýsingar veita Sigríður Ólafsdóttir; sigga@mognum.is og Telma Eiðsdóttir; telma@mognum.is
Please notice that the deadline for application is Nov 23th , not Nov 11.
#Iceland #Island